Heimferðarsett Hringsins sett með buxum-prjónauppskrift
2.500 kr.
Þessi uppskrift varð til fyrir einhverjum árum, unnin upp úr einhverri gamalli uppskrift, endurskrifuð og stílfærð fyrir Hringinn. Við Hringskonur höfum nú prjónað þetta sett í nokkur ár sem hefur verið til sölu hérna á vefnum undir nafninu Heimferðarsett Hringsins. Núna gefst þér tækifæri til að kaupa þessa uppskrift hér . Einungis er um eina stærð að ræða þ.e. ca. 0-3 mánaða en auðvitað er hægt að stækka hana upp með því að nota grófari prjóna, grófara garn osfrv. Um er að ræða uppskrift af peysu, buxum, húfu, sokkum og vettlingum.
Allur ágóði af vefverslun Hringsins rennur óskiptur í Barnaspítalasjóð Hringsins.









































