Hálsmen Hringsins gull

18.900 kr.

Hálsmenið er innblásið af hinu óeigingjarna starfi Hringskvenna, en meninu er ætlað að endurspegla þá ást og umhyggju sem þær veita í gegnum starfið.
Hálsmenið sýnir hjartaform og tvo arma sem halda utan um Regnboga mánastein. Hjartaformið táknar ást, góðvild og samúð en steinninn er tákn fyrir börnin. Regnboga mánasteinn ýtir undir gleði og fallegar hugsanir en hann hefur tengingu við andlegan vöxt og innsæi. Hann veitir róandi orku sem hjálpar að ná tilfinningalegu jafnvægi og innri frið. Perulögun steinsins táknar áminningu um að umvefja jafnt þá gleðilegu sem hina krefjandi þætti lífsins.

Innilegar þakkir fyrir stuðninginn.

Allur ágóði rennur í Barnaspítalasjóð Hringsins sem starfað hefur í þágu barna frá árinu 1904.

Allur ágóði af vefverslun Hringsins rennur óskiptur í Barnaspítalasjóð Hringsins.

Tengdar vörur