Jólabasar Hringsins 2021!

Hinn víðfrægi Jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík sunnudaginn 7. nóvember kl. 13.⁠
Til sölu verða einstaklega fallegir handgerðir munir og prjónavörur að ógleymdri kökusölunni með öllum sínum glæsilegu tertum, smákökum og hvers kyns kruðeríi.⁠
Loks markar Jólabasarinn upphaf jólakortasölu Hringsins.⁠
Allt fé sem Hringskonur safna, gjafir og áheit rennur óskipt í Barnaspítalasjóð Hringsins.⁠
Sprittbrúsar verða að sjálfsögðu á staðnum og hvetjum við fólk til að huga að persónulegum sóttvörnum.⁠
Hlökkum til að sjá sem flesta!⁠

Aðrar fréttir