Hringurinn tekur við gjöf

Á myndinni má sjá yndislegu systkinin Bergþóru Dís, 9 ára, og Sævar Mána, 2 ára. Fyrir jólin ákvað Bergþóra Dís að teikna myndir og selja til styrktar⁠
Barnaspítala Hringsins. Hún sagði Barnaspítalann hafa bjargað lífi bróður síns en hann hefur þurft á aðstoð spítalans að halda. Safnaði þessi öfluga stúlka alls 35.000 kr. og rann ágóðinn til Hringsins!⁠

Takk kærlega fyrir stuðningin kæra Bergþóra Dís 💙⁠

Myndbirting með leyfi forráðamanna.

Aðrar fréttir