Hringurinn gefur öndunarnema

Í mars samþykkti stjórn Hringsins styrk til Vökudeildar til kaupa á 12 öndunarnemum, að fjárhæð 1.918.800 kr.⁠
 
Eftirlit með lífsmörkum fyrirbura er mikilvægt á Vökudeild. Þegar þau vaxa og þroskast er mögulegt að einfalda eftirlitið og styðjast við öndunarnema. Öndunarnemi nemur öndun barnsins og gefur merki ef engin boð berast í ákveðinn tíma.
 
Á Vökudeildinni er haft það verklag að börn útskrifist heim með öndunarnema undir vissum kringumstæðum. Þess vegna er mikilvægt að nægur tækjakostur sé til reiðu og vill Hringurinn styðja við það.

Aðrar fréttir