Hálsmen Hringsins 2022!
Hringurinn reynir sífellt að finna upp á nýjum leiðum til fjáraflana og kynnum við með stolti nýjustu vöru okkar – hálsmen Hringsins 2022!
Við fengum til liðs við okkur listakonuna og snillinginn Hildi Hafstein og er útkoman þetta gullfallega hálsmen.
Hálsmenið er fáanlegt í tveimur útgáfum, úr sterling silfri og gullhúðuðu silfri.
Þau fást að sjálfsögðu í vefverslun okkar en eru einnig seld hjá Hildi Hafstein Klapparstíg 40.
Allur ágóði rennur til Hringsins.
Hér er hægt að versla hálsmenið. Ef ætlunin er að gefa það í gjöf er tilvalið að grípa tækifæriskort með.