Félagslög Hringsins

1.gr. Nafn og heimili. 

Félagið heitir Hringurinn. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2.gr. Tilgangur. 

Tilgangur félagsins er að vinna að líknar- og  mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Félagið vinnur að markmiðum sínum með fjáröflun og ráðstöfun fjármuna, sbr. 5. gr. Félagskonur vinna að markmiðum félagsins í sjálfboðavinnu.

  1. gr. Aðild.

Félagið er kvenfélag og félagar geta þær konur orðið, sem vilja vinna að markmiðum félagsins og taka þátt í starfsemi þess. Umsóknir um inngöngu í félagið skulu berast stjórninni, sem afgreiðir þær með samþykki eða synjun. Umsókn skulu fylgja meðmæli tveggja félagskvenna, sem hafa starfað í félaginu í að minnsta kosti tvö ár.

Ákveði félagskona að segja sig úr félaginu skal tilkynna stjórn úrsögn skriflega.

4.gr. Félagsgjöld. 

Aðalfundur ákveður félagsgjöld.

Allar félagskonur skulu greiða félagsgjald til félagsins nema þær sem eru 80 ára og eldri.

Félagskonur bera ekki persónulega ábyrgð á skuldum eða öðrum skuldbindingum félagsins nema með félagsgjaldi sínu.

Hafi félagskona ekki greitt félagsgjald í þrjú ár, er stjórn heimilt að taka hana af félagaskrá. Áður en slíkt er gert skal viðkomandi þó tilkynnt um fyrirhugaða ákvörðun skriflega og henni gefinn kostur á að tjá sig.

5.gr. Sjóðir í vörslu félagsins. 

Barnaspítalasjóður Hringsins. Í Barnaspítalasjóð rennur öll fjáröflun á vegum félagsins auk styrkja og gjafa sem sjóðnum berast frá velunnurum. Úr Barnaspítalasjóði eru veittir styrkir til líknar- og mannúðarmála, sérstaklega í þágu barna í samræmi við tilgang félagsins, sbr. 2. gr. Sjóðurinn starfar samkvæmt samþykktum þar sem meðal annars er kveðið á um tilgang hans og meðferð fjár. Samþykktir sjóðsins, sem og breytingar á þeim, skulu samþykktar á aðalfundi Hringsins.

Félagssjóður Hringsins. Í félagssjóð renna árgjöld, inngöngugjöld og ágóði af félagsfundum. Innkomu er ætlað að standa undir rekstrarkostnaði félagsins.

Veitingastofa Hringsins er félag í eigu Kvenfélags Hringsins.

6.gr. Aðalfundur. 

Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert og skal hann boðaður skriflega, eða á annan sannanlegan hátt, með minnst tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja fundarboði.

Aðalfundur telst löglegur sé rétt til hans boðað. Rétt til fundarsetu og atkvæðisrétt hafa allar félagskonur sem eru skuldlausar við félagið. Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála, sjá þó 12. og 13. gr.

Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
  3. Skýrsla gjaldkera og ársreikningar, sbr. 10. gr.
  4. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram til samþykktar, sbr. 10.gr.
  5. Skýrslur formanna nefnda sbr. 9. gr.
  6. Aðalfundur ákveður félagsgjöld, sbr. 4. gr.
  7. Lagabreytingar, sbr. 12. gr.
  8. Samþykktir Barnaspítalasjóðs Hringsins, sbr. 5. gr.
  9. Stjórnarkjör, sbr. 7. gr.
  10. Kosning í nefndir, sbr. 9. gr.
  11. Ákvörðun um endurskoðun reikninga félagsins og sjóða í vörslu þess, sbr. 10. gr.
  12. Kosning endurskoðanda, sbr. 10. gr.
  13. Önnur mál.

7.gr. Stjórn. 

Stjórn félagsins skal skipuð formanni og fjórum stjórnarkonum, og fjórum til vara. Á aðalfundi ár hvert skal kjósa tvær konur í aðalstjórn og tvær í varastjórn til tveggja ára í senn. Kjörgengar í stjórn félagsins eru þær félagskonur sem Uppstillingarnefnd gerir tillögur um og þær félagskonur, sem tilkynnt hafa stjórn um framboð til stjórnar mánuði fyrir aðalfund. Láti stjórnarkona af störfum í stjórn félagsins áður en kjörtímabili hennar er lokið skal á næsta aðalfundi kjósa í hennar stað fyrir það kjörtímabil sem fráfarandi stjórnarkona var kjörin til. Stjórnarkjör skal vera skriflegt sé eftir því óskað og teljast þær kjörnar, sem flest atkvæði hljóta. Hljóti tveir eða fleiri frambjóðendur jafn mörg atkvæði skal hlutkesti ráða.

Formaður félagsins skal kosinn sérstaklega á aðalfundi annað hvert ár. Ef formaður gefur ekki kost á sér til endurkjörs, skal tilkynna það á félagsfundi, eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir aðalfund.

Félagskonur skulu ekki sitja lengur í stjórn eða varastjórn en sex ár samfellt og er ekki heimilt að taka sæti í stjórn eða varastjórn að nýju fyrr en tvö ár hafa liðið frá fyrri stjórnarsetu. Þó er formanni heimilt að sitja lengur ríki um það almenn samstaða.

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér verkum og velur varaformann, ritara og gjaldkera. Áður en gengið er frá vali gjaldkera, skal viðtakandi gjaldkeri skila inn sakavottorði á fyrsta stjórnarfundi. Stjórn ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi félagsins á milli aðalfunda. Stjórn félagsins skal halda skrá yfir félagskonur. Stjórn setur sér starfsreglur þ.m.t. um tilgreindan skoðunaraðgang fráfarandi gjaldkera á bankareikningum til stuðnings viðtakandi gjaldkera. Starfsreglur skulu kynntar á fyrsta félagsfundi eftir aðalfund.

Stjórnarkona skal ekki taka þátt í meðferð einstaks máls ef hún eða einhver henni nákominn á verulegra hagsmuna að gæta og víkur hún þá af fundi við afgreiðslu málsins.

  1. Félagsfundir.

Félagsfundir þ.e. aðalfundir og almennir félagsfundir,  fara með æðsta vald í málefnum félagsins.

Félagsfundir skulu haldnir einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina og skulu þeir boðaðir skriflega eða á annan sannanlegan hátt. Á fyrsta félagsfundi eftir aðalfund ár hvert, skal stjórn leggja fram starfs- og fundaáætlun næsta starfsárs, sem hefst að loknum aðalfundi.

Skylt er að halda félagsfund þegar a.m.k. 50 félagskonur óska þess skriflega og geta fundarefnis. Skal sá fundur boðaður á sannanlegan hátt og haldinn innan 14 daga frá því að krafa um það barst stjórn.

  1. Nefndir.

Félagskonur inna af hendi vinnu í þágu félagsins og taka þátt í starfi nefnda. Í nefndir félagsins skal að jafnaði kosið á aðalfundi í samræmi við ákvæði þetta.

Uppstillingarnefnd er skipuð þremur konum sem kosnar eru á aðalfundi. Nefndin gerir tillögur um félagskonur í stjórn, Uppstillingarnefnd og fjáröflunarnefndir. Skal nefndin skila tillögum til félagsstjórnar a.m.k. fjórum vikum fyrir boðaðan aðalfund. Uppstillingarnefnd annast val á formönnum nefnda félagsins, sem ekki er kosið um á aðalfundi.

Fjáröflunarnefndir félagsins sem kosnar eru á aðalfundi eru:

  1. Baukanefnd, hefur eftirlit með fjáröflunarbaukum.
  2. Gjafahornið, selur handavinnu Hringskvenna.
  3. Happdrættisnefnd, vinnur að jólahappdrætti.
  4. Hugmynda- og nýsköpunarnefnd, vinnur að nýjungum í fjáröflunum félagsins.
  5. Jólabasarnefnd, vinnur að jólabasar Hringsins.
  6. Jólakaffinefnd, vinnur að jólakaffi Hringsins.
  7. Kortanefnd, annast útgáfu og sölu jóla – og tækifæriskorta.
  8. Krakkahornið, selur handavinnu Hringskvenna úti í bæ.
  9. Nefnd vegna Reykjavíkurmaraþons, skipuleggur fjáröflun og kynningu í tengslum við Reykjavíkurmaraþon.
  10. Veitingastofunefnd, annast sjálfboðaliðastarf á veitingastofu félagsins á Barnaspítala Hringsins.

 Stjórn er heimilt að skipa í aðrar nefndir, sem vinna að málefnum félagsins og félagsstarfi í samráði við hana. Einnig má kjósa í slíkar nefndir á félagsfundum, ef þess gerist þörf.

10.gr. Ársreikningar og endurskoðun.

 Reikningsár félagsins er almanaksárið. Uppgjör og ársreikningar félagsins og sjóða á vegum þess, sem endurskoðaðir hafa verið af löggiltum endurskoðanda, skulu liggja frammi a.m.k. viku fyrir aðalfund.

  1. Ráðstöfun fjármuna og eigna félagsins og sjóða í vörslu þess.

Fjármunir félagsins og sjóða í vörslu þess skulu ávaxtaðir í banka með sem hæstri ávöxtun án áhættu.

Komi til meiriháttar ákvarðana, er varða fjáröflunarleiðir, fjármál félagsins, sjóða eða annarra eigna í þess vörslu, ber stjórninni að bera þær upp á félagsfundi til samþykktar. Skulu þær kynntar í fundarboði.

  1. Lagabreytingar.

Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi og þarf til þess samþykki 3/4 hluta fundarmanna. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 1. apríl ár hvert og skulu þær sendar út með fundarboði til aðalfundar.

  1. Félagsslit.

Ákvörðun um slit á félaginu má aðeins taka á aðalfundi og þarf til þess samþykki 3/4 hluta fundarmanna. Geta skal sérstaklega áforms um félagsslit í fundarboði.

Verði félaginu slitið skal eignum þess og sjóðum ráðstafað til tækjakaupa í þágu Barnaspítala Hringsins, en ekki til daglegs reksturs spítalans.

Lög samþykkt á aðalfundi Hringsins 22 maí 2024.