Íslenskur upphlutur, svunta, skotthúfa fyrir stúlkur – sérpöntun
40.000 kr.
Handprjónaður íslenskur 19. alda upphlutur fyrir 17. júní t.d. Prjónaður úr Drops baby merino sem er ullarband ásamt Leonora by Permin sem er blanda af 50% Silki, 40% Ull, 10% Mohair sem gefur fallega glansáferð
Stærðir 1-2 ára, 3-4 ára, 5-6 ára. Hægt er að nota kjólinn í tvö ár, þ.e. 3 sinnum á 17. júní. Hann er síður til að byrja með en styttist svo.
- Sídd frá öxlum ca. 45 cm 54 cm, 60 cm.
- Vídd fyrir neðan handveg ca 51-53 cm, 54-55 cm, 57-59 cm
Þar sem um sérpöntun er að ræða er hægt að semja um lit og stærð en afhendingartíminn getur verið frá 3-4 vikur þar sem um sérpöntun er að ræða og varan því ekki á lager.
Vinsamlegast veljið lit með að senda póst á [email protected] þegar búið er að greiða fyrir vöruna.
Sjá liti hér Drops baby merino, Leonora by Permin. Velja þarf báðar tegundirnar.
Afhendingartími ca. 7 til 10 dagar
(nema þegar um er að ræða sérpantanir).
Allur ágóði af vefverslun Hringsins rennur óskiptur í Barnaspítalasjóð Hringsins.
























