Hringurinn tekur við gjöf

Þessar öflugu stöllur héldu söfnun fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins með því að setja dósir í endurvinnslu, söfnuðu styrkjum frá foreldrum, ömmum og öfum og tæmdu sparibauka systkina sinna. Þær söfnuðu alls 70.500 kr. og rann ágóðinn til Hringsins.
 
Anna Björk Eðvarðsdóttir, formaður Hringsins, veitti gjöfinni viðtöku og afhenti stöllunum þakkarskjal frá Hringnum. Takk kærlega fyrir stuðninginn okkar kæru.
 
Myndbirting með leyfi forráðamanna.

Aðrar fréttir