25. nóvember 2019 Jólanæla Hringsins 2019

Jólanælan er nýjung í fjáröflun Hringsins. Sala á Jólanælunni 2019 hefst formlega á Jólakaffi Hringsins í Hörpu sunnudaginn 1. desember og stendur til 15. desember.

Sölustaðir eru Bónusverslanir í Holtagörðum, Smáratorgi, Garðabæ og Skeifunni. Einnig í Ömmu mús og Storkinum.

Hönnuðir nælunnar eru Hringskonur ásamt velunnurum Barnaspítalasjóðsins.  Allur ágóði af sölu nælunnar rennur í Barnaspítalasjóð Hringsins.

Kaup á Jólanælu Hringsins er tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru hættir að senda jólakort en vilja gjarnan styrkja Barnaspítalasjóðinn fyrir jólin.

Aðrar fréttir