Hringurinn

Hringurinn

Hringurinn er kvenfélag sem hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Aðalverkefni félagsins um áratugaskeið hefur verið uppbygging Barnaspítala Hringsins. Mörg önnur verkefni, sem tengjast veikum börnum, hafa verið studd og styrkt. Þau stærstu eru uppbygging Barna- og unglingageðdeildar Landspítala og rekstur Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar barna með sérþarfir.

Í félaginu eru nú 335 konur á öllum aldri. Félagsfundir eru haldnir einu sinni í mánuði á veturna, félagskonum til fræðslu og skemmtunar. Starfsemin byggist hins vegar fyrst og fremst á því mikla starfi sem fram fer í nefndum félagsins.

Fjáröflunarleiðirnar eru söfnunarbaukar, sem staðsettir eru víða, s.s. í Leifsstöð, jólakaffi og happdrætti, sem haldin eru á aðventunni á hverju ári, jólabasarinn, sem haldinn er í nóvember á hverju ári, minningarkortin, sem seld eru allt árið, jólakortin og veitingasalan í Barnaspítalanum.

Í lok árs 2007 náðust samningar við Spöl um uppsetningu á sérstökum söfnunarbaukum við lúgur gjaldskýlisins við norðurenda Hvalfjarðarganganna þannig að vegfarendur geti styrkt Barnaspítalasjóðinn á einfaldan hátt. Vaktmenn í gjaldskýlinu segja að vegfarendur hafi strax tekið vel við sér, sjá myndir og meiri upplýsingar á www.spolur.is

Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506
Formaður Hringsins er Valgerður Einarsdóttir - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - 867 4770.

Hringurinn - Nethyl 2, 110 Reykjavík - sími 551-4080

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Veitingastofa Hringsins

Hringurinn hefur starfrækt veitingastofu í anddyri Barnaspítalans frá árinu 2003. Þar eru seldar léttar veitingar, s.s. súpa, smurt brauð, mjólkurvara, kaffi og kökur. Veitingastofan er fyrst og fremst ætluð fyrir aðstandendur barnanna, en starfsfólk spítalans sækir einnig veitingastofuna mikið.  Opið er virka daga frá kl. 8 til kl. 14.

Daglegur rekstur er í höndum Jóhönnu S. Sigmundsdóttur - sími - 899-1136   - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Veitingar á fundum
Veitingastofan tekur að sér að sjá um veitingar í tengslum við fundi í Hringssal og jafnvel í öðrum sölum á vegum Landspítala. Boðið er upp á mismunandi samsetningar (pakka) veitinga: Kaffi, te, kakó, vatn, gosdrykki, smurt brauð, smábrauð (rúnnstykki), kleinur, múffur (muffins), vínarbrauð, tertur og ýmislegt fleira.  Þessi þjónusta er einnig veitt utan venjulegs vinnutíma og um helgar. Hafið samband við starfsmenn í síma: 543-3131

Sýningar- og söluskápur
Settur hefur verið upp í anddyri Barnaspítalans sýningarskápur með handavinnu Hringskvenna. Þar má sjá ýmsa gjafavöru, s.s. skírnargjafir og sængurgjafir, sem gestir og gangandi geta keypt og þannig styrkt Barnaspítalasjóð Hringsins. 

Stjórn veitingastofunnar skipa:
Laufey Gunnarsdóttir - sími     898-3298     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ragna Eysteinsdóttir - sími     899-2720     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sigrún Hjaltalín - sími     820-0067     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nú liggja fyrir teikningar að innréttingum vegna stækkunar veitingastofunnar og er fyrirhugað að nýi hlutinn verði tekinn í notkun í janúar-febrúar 2010.

Veitingastofuna vantar alltaf góðar félagskonur til að taka þátt í starfinu. Vinsamlega gefið ykkur fram á staðnum eða við Hrefnu í síma   698-4202  eða með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Síðast uppfært: Föstudagur, 16. júlí 2010 22:11