2010

 

Janúar

Sunnudagur 24. janúar. Afmælissúkkulaði í Nethyl í boði stjórnar kl.14.

 

Febrúar

Miðvikudagur 3. febrúar.   Félagsfundur kl. 18:30. Gestir: Heimilisiðnaðarfélag Íslands,
sýndir verða íslenskir búningar

 

Mars

Miðvikudagur 3. mars.   Félagsfundur kl. 18:30. Gestur:  Björg Einarsdóttir sem segir frá
stofnanda Hringsins, Kristínu Vídalin Jacobson

Fimmtudagur 11. mars.  Árshátíðin haldin í Veisluturninum í Smáranum.


Apríl

Miðvikudagur 7. apríl.   Félagsfundur kl. 18:30.
Gestur: Ingrid Kuhlmann frá Þekkingarmiðlun flytur fróðlegt erindi.


Maí

Miðvikudagur 5. maí.  Aðalfundur Hringsins verður haldinn í Nethyl 2 kl. 18:30.

Dagskrá aðalfundarins:
 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Skýrsla gjaldkera. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
  3. Skýrslur formanna nefnda
  4. Ákvörðun árgjalds
  5. Lagabreytingar sem borist hafa stjórninni (Sjá hér að neðan)
  6. Stjórnarkjör: a) Tvær konur í aðalstjórn,  b) Tvær konur í varastjórn
  7. Kosning í nefndir
  8. Önnur mál. 

Sameiginlegt borðhald. Verð kr. 1.800.   Léttvín og gosdrykkir verða til sölu.

 

Tillögur að lagabreytingum:

1. Ragnheiður Sigurðardóttir leggur til að 2. grein félagslaga hljóði: “Markmið félagsins  er að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu veikra barna”

2. Jóna I. Guðmundsdóttir leggur til að bæta inn í 6. grein félagslaga: “Endurkjósa má konu í stjórn einu sinni, þ.e. hver kona getur setið í stjórn tvö kjörtímabil samfellt eða fjögur ár”