|

Hringurinn veitir styrk til kennara Barnaspítala Hringsins, tvær kennaratölvur og fimm fartölvur fyrir nemendur og foreldra langveikra barna. Með tölvunum komast börnin meðal annars á Skólavefinn.
|
|
Félagatal Hringsins er gefið út með andlitsmyndum af félagskonum. Þetta hefur mælst vel fyrir og myndasöfnunin hefur gengið nokkuð vel, en betur þarf að gera ef takast á að ná því markmiði að sérhverju nafni fylgi mynd.
Við munum halda áfram að safna myndum í félagatalið. Best er að fá myndirnar á stafrænu formi frá góðum ljósmyndara á tölvupóstfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Góðar myndir á pappírsformi má einnig senda á skrifstofu félagsins í Nethyl 2, 110 Reykjavík.
Gætið þess að allar myndir séu merktar eða tengdar við nafn félagskonu.
Rétt er að benda á að ljósmyndastofa er í Nethyl á næstu hæð fyrir ofan félagsheimilið. Þar er hún Sirrý ljósmyndari sem hefur sent okkur margar góðar myndir. Tilvalið er að panta tíma hjá henni (557-7576) í tengslum við mætingu á félags- eða nefndafundi.

Golfmót. Annað golfmót Hringskvenna á árinu 2009 var haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi 12. ágúst. Þátt í mótinu tóku yfir 20 konur og léku 18 holur. Veðrið var gott og konur kátar. Nesklúbburinn gerði vel við okkur og veitingarnar í klúbbhúsinu á eftir voru mjög góðar. Verðlaun voru veitt fyrir besta skor og hlutu þau Kristín Kristjánsdóttir og gestur mótsins, Dóra kennari á Barnaspítala Hringsins.
|
|

Stella María Jónsdóttir, færði Barnaspítalasjóði Hringsins myndarlega fjárupphæð að gjöf. Með því vill hún styrkja starf kvenfélagsins í þágu veikra barna.
Hringskonur færa henni alúðarþakkir
|
|
 Golfleikarar í hópi félagskvenna hittust á golfvellinum við Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd fimmtudaginn 18. júní 2009. Leiknar voru 18 brautir, fyrri níu með öllum kylfunum, en seinni níu með þremur kylfum auk púttara. Veðrið var frábært til leiks og þetta litla ævintýri tókst vel. Að mótinu loknu var sameiginleg máltíð í golfskálanum og verðlaunaafhending fór fram. Til verðlauna unnu Gerður Birna Guðmundsdóttir (hvatningarverðlaun), Katla Ólafsdóttir (lengsta teighögg), Laufey Gunnarsdóttir (lægsta skor) og Sigrún Hjaltalín (nándarverðlaun).
|
Fjórar ungar stúlkur í Vík í Mýrdal tóku sig til og héldu tombólu í maílok til styrktar Barnaspítalasjóðnum. Þær heita: Birna Sólveig, Sigurjóna, Ólöf og Guðrún Lilja. Þeim er innilega þakkað fyrir hugulsemina og framlag sitt, kr. 7470. |
 Golfmót Hringskvenna 2008 var haldið snemmsumars á golfvellinum á Vatnsleysuströnd undir stjórn Jónu Bjarnadóttur. Leiknar voru 18 holur í fallegu veðri, en svolitið blés þó. Verðlaun voru vegleg og konur ánægðar með samveruna þennan dag. |
|
Til Íslands komu í september áhangendur skoska landsliðsins í fótbolta til að vera viðstaddir landsleik milli Skota og Íslendinga. Þeir hafa myndað góðgerðarsamtök sem nefnast The Tartan Army Sunshine Appeal og hafa það fyrir venju að veita styrki í þeim löndum sem landsleikur fer fram í. Í þetta sinn varð Barnaspítalasjóður fyrir valinu og var tekið á móti hópnum í Veitingastofu Hringsins 10. september 2008 þar sem afhentar voru kr. 170 þús. í sjóðinn. Fréttamenn voru viðstaddir og boðið var upp á súpu. |
|
Fyrri hluta júní-mánaðar skoðuðu stjórnarkonur nýbyggingu BUGL, sem hýsir göngudeild starfseminnar. Móttökur voru góðar og var hópurinn leystur út með kostnaðaráætlun um ýmislegt sem eftir er að fjármagna. Stjórnin fundaði síðar um þetta og samþykkti að veita styrk til að kaupa húsbúnað í biðstofu og innréttingar í fundarherbergi fyrir börn og aðstandendur. |
Hringurinn afhenti fæðingadeild Landspítala 23A og Hreiðrinu að gjöf tvo súrefnismettunarmæla þann 29. janúar 2009. Mælarnir gefa færi á að fylgjast náið með súrefnismettun í blóði nýbura, sem eykur mjög á öryggi varðandi mat á ástandi nýfæddra barna, sem geta þannig dvalist með mæðrum sínum á deildinni. |
|
Frá því í júní 2008 og fram í desember sama ár heimsóttu stjórnarmeðlimir Barna- og unglingageðdeild, Litningarannsóknadeild, Kvennadeild Landspítala og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra til að færa þeim styrki úr Barnaspítalasjóðnum. Í október 2008 var hins vegar farið í heimsókn í gamla Glitni til að veita viðtöku þeirri upphæð sem kom inn sem áheit við Reykjavíkurmaraþon í ágúst. |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 2 |