Félagsfréttir

Golfmót Hringskvenna 2008 var haldið snemmsumars á golfvellinum á Vatnsleysuströnd undir stjórn Jónu Bjarnadóttur. Leiknar voru 18 holur í fallegu veðri, en svolitið blés þó. Verðlaun voru vegleg og konur ánægðar með samveruna þennan dag.
 
Til Íslands komu í september áhangendur skoska landsliðsins í fótbolta til að vera viðstaddir landsleik milli Skota og Íslendinga. Þeir hafa myndað góðgerðarsamtök sem nefnast The Tartan Army Sunshine Appeal og hafa það fyrir venju að veita styrki í þeim löndum sem landsleikur fer fram í. Í þetta sinn varð Barnaspítalasjóður fyrir valinu og var tekið á móti hópnum í Veitingastofu Hringsins 10. september 2008 þar sem afhentar voru kr. 170 þús. í sjóðinn. Fréttamenn voru viðstaddir og boðið var upp á súpu.
 

Fyrri hluta júní-mánaðar skoðuðu stjórnarkonur nýbyggingu BUGL, sem hýsir göngudeild starfseminnar. Móttökur voru góðar og var hópurinn leystur út með kostnaðaráætlun um ýmislegt sem eftir er að fjármagna. Stjórnin fundaði síðar um þetta og samþykkti að veita styrk til að kaupa húsbúnað í biðstofu og innréttingar í fundarherbergi fyrir börn og aðstandendur.

 
Hringurinn afhenti fæðingadeild Landspítala 23A og Hreiðrinu að gjöf tvo súrefnismettunarmæla þann 29. janúar 2009. Mælarnir gefa færi á að fylgjast náið með súrefnismettun í blóði nýbura, sem eykur mjög á öryggi varðandi mat á ástandi nýfæddra barna, sem geta þannig dvalist með mæðrum sínum á deildinni.
 
Frá því í júní 2008 og fram í desember sama ár heimsóttu stjórnarmeðlimir Barna- og unglingageðdeild, Litningarannsóknadeild, Kvennadeild Landspítala og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra til að færa þeim styrki úr Barnaspítalasjóðnum. Í október 2008 var hins vegar farið í heimsókn í gamla Glitni til að veita viðtöku þeirri upphæð sem kom inn sem áheit við Reykjavíkurmaraþon í ágúst.
 

Aðalfundur Hringsins

Aðalfundur Hringsins 2010 verður haldinn í Nethyl 2 miðvikudaginn 5. maí kl. 18:30.

 

 

Hringskonur á ferðHringskonur fóru í sína árlegu dagsferð sunnudaginn 7. júni 2009. Ekið var um Suðurlandið að Hellu þar sem handverkshúsið Hekla var skoðað. Frábær hádegisverður var snæddur á Hótel Rangá og boðið upp á óvænt skemmtiatriði félagskvenna undir borðum. Síðan var ekið að Odda og kirkjan þar skoðuð undir fróðlegri leiðsögn sóknarprestsins, sr. Guðbjargar. Þá var ekið um Hvolsvöll upp í Fljótshlíð með viðkomu á hestabúgarðinum Völlum þar sem ein félagskona rekur búskap ásamt fjölskyldu sinni. Eftirmiðdagskaffi var drukkið í Kaffi Langbrók og eigendur þar skemmtu félagskonum með söng. Konur héldu síðan glaðar heim, mjög ánægðar með frammistöðu ferðanefndar félagsins og leiðsögumanns ferðarinnar, Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur.
 
Af ýmsum ástæðum er rétt að taka fram að ferðakostnaðurinn var algjörlega
greiddur af þátttakendunum sjálfum.

 
« FyrstaFyrri12NæstaSíðasta »

Síða 2 af 2