Til Íslands komu í september áhangendur skoska landsliðsins í fótbolta til að vera viðstaddir landsleik milli Skota og Íslendinga. Þeir hafa myndað góðgerðarsamtök sem nefnast The Tartan Army Sunshine Appeal og hafa það fyrir venju að veita styrki í þeim löndum sem landsleikur fer fram í. Í þetta sinn varð Barnaspítalasjóður fyrir valinu og var tekið á móti hópnum í Veitingastofu Hringsins 10. september 2008 þar sem afhentar voru kr. 170 þús. í sjóðinn. Fréttamenn voru viðstaddir og boðið var upp á súpu.
|