Forsíða Félagsfréttir
Félagsfréttir
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Styrkveitingar úr Barnaspítalasjóði Hringsins árið 2009

 

Vökudeild:

Styrkur upp í kaup á öndunarvélum

Hitaborð og vöggur

Augnbotnamyndavél

 

Fæðingardeild:

Monitorar

Laryngoscope tæki

 

Sængurkvennadeild:

Tæki fyrir mæður og börn  m.a. skoðunarbekkir,

síritar, mjaltavél og húðgulumælir

 

Kennarar Barnaspítalans:

Kennaratölvur og fartölvur fyrir nemendur og foreldra langveikra barna

 

Svæfinga- og gjörgæsludeild:

Forrit í svæfingadælu fyrir 16 ára og yngri

 

G3 Fossvogi :

Biðstofa barna LSH, húsgögn, tæki og leikföng.

 

Slysa- og bráðadeild Fossvogi:

Hitamælar og blöðruómskoðunartæki

 

Barnavöknun Fossvogi:

Hvíldarstólar

 

BUGL:

Stækkun, áfangi 2 og sumargarður

 

Sjónarhóll:  
Sem svarar einum starfsmanni í eitt ár

 

Á haustmánuðum voru veittir styrkir til heimila fyrir börn og unglinga það voru:

Rjóðrið

Skammtímavistunin Álfalandi

Skammtímavistunin Akureyri

Móvað

Lyngás

 

Auk þess voru veittir nokkrir smærri styrkir

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Tilveran.is styrkti Barnaspítalasjóð um 100.000.- krónur í nóvember. Rökkvi Vésteinsson setti sér það mark við opnun á þessum nýja afþreyingarvef að ef hann næði 30.000 meðlimum myndi hann styrkja sjóðinn um þessa upphæð. Það tókst og við Hringskonur þökkum fyrir okkur.

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Barnaspítalasjóði hefur borist gjöf frá Alcan á Íslandi, 100 þúsund krónur. Starfsmenn Álversins hlupu Reykjavikurmaraþon og hópurinn Vísindamennirnir valdi Hringinn sem styrktaraðila. Styrkurinn var afhentur í Álverinu þann 13. nóvember. 

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Barnaspítali Hringsins fær afhentar fartölvur

Hringurinn veitir styrk til kennara Barnaspítala Hringsins, tvær kennaratölvur og fimm fartölvur fyrir nemendur og foreldra langveikra barna. Með tölvunum komast börnin meðal annars á Skólavefinn.

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Félagatal Hringsins er gefið út með andlitsmyndum af félagskonum.  Þetta hefur mælst vel fyrir og myndasöfnunin hefur gengið nokkuð vel, en betur þarf að gera ef takast á að ná því markmiði að sérhverju nafni fylgi mynd.

Við munum halda áfram að safna myndum í félagatalið. Best er að fá myndirnar á stafrænu formi frá góðum ljósmyndara á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Góðar myndir á pappírsformi má einnig senda á skrifstofu félagsins í Nethyl 2, 110 Reykjavík.

Gætið þess að allar myndir séu merktar eða tengdar við nafn félagskonu.

Rétt er að benda á að ljósmyndastofa er í Nethyl á næstu hæð fyrir ofan félagsheimilið. Þar er hún Sirrý ljósmyndari sem hefur sent okkur margar góðar myndir. Tilvalið er að panta tíma hjá henni (557-7576) í tengslum við mætingu á félags- eða nefndafundi.


golfmot hringskvenna

Golfmót.  Annað golfmót Hringskvenna á árinu 2009 var haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi 12. ágúst. Þátt í mótinu tóku yfir 20 konur og léku 18 holur. Veðrið var gott og konur kátar. Nesklúbburinn gerði vel við okkur og veitingarnar í klúbbhúsinu á eftir voru mjög góðar. Verðlaun voru veitt fyrir besta skor og hlutu þau Kristín Kristjánsdóttir og gestur mótsins, Dóra kennari á Barnaspítala Hringsins.

 
«FyrstaFyrri123NæstaSíðasta»

Síða 1 af 3
Höfundarréttur © 2010 Hringurinn. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.