Hringskonur vilja færa fram bestu þakkir  til allra þeirra hlaupara sem ákváðu að heita á Hringinn. Okkur er það mikils virði að til okkar sé hugsað og þökkum innilega fyrir stuðninginn.



Örstutt um Hringinn og Barnaspítalasjóðinn / The Children‘s Hospital Fund
Markmið félagsins er að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Félagskonur vinna að fjáröflun með ýmsum hætti (sjá neðar). Starf félagsins byggist á sjálfboðavinnu. Úr Barnaspítalasjóði Hringsins eru veittir styrkir til  kaupa á ýmis konar búnaði og tækjum sem notuð eru til að veita veikum börnum á Íslandi nauðsynlega meðferð og aðhlynningu. Stærstu styrkirnir hafa farið til Barnaspítala Hringsins og til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Heimasíða félagsins er
www.hringurinn.is.

Stuðningur ykkar skiptir okkur miklu máli.