Forsíða Jólabasarinn
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 12. ágúst 2008 16:50

Jólabasar Hringsins er haldinn á hverju ári í nóvember. Á basarnum eru seldar jólavörur af ýmsu tagi, s.s. jólaskraut og jóladúkar, prjónavörur, s.s. peysur, sokkar og húfur, og úrval af heimabökuðum kökum.

Undirbúningur jólabasarsins hefst strax í janúar þegar félagskonur koma saman til hannyrða. Þær hittast síðan vikulega til að föndra, sauma og prjóna muni til að selja. Á síðustu dögunum er svo bakað, því að kökusala er mikilvægur hluti af basarnum. Þá eru jólakort Hringsins einnig til sölu.

Árin 2004 til 2009 hefur basarinn verið haldinn á Grand hóteli við Sigtún, en í mörg ár þar á undan var hann í Perlunni í Öskjuhlíð.

Þeim, sem heimsækja basarinn og styðja við starf Hringsins með því að kaupa jólakort, hannyrðavörur eða kökur, er þakkað af alhug fyrir trygglyndið.


Jólabasarinn 2010 verður haldinn á Grand Hóteli við Sigtún sunnudaginn 7. nóvember.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 07. mars 2010 11:25
 
Höfundarréttur © 2010 Hringurinn. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.